Fitness Box (cardio & aerobic boxing)


Íþrótta sérfræðingar eru sammála um það að fitness box (cardio & aerobic boxing) sé meðal bestu æfinga sem er í boði vegna þess að það æfir allan líkamanninn í heild og er fullkomin æfing fyrir hjartakerfið og þolið. Fitness box hentar vel þeim sem vilja grennast hratt og á heilbrigðan hátt ásamt því að styrkja hjartað, æðakerfið og þolið.
Helstu kostir fitness boxins er m.a.
• aukið þol
• aukin styrkur
• aukin hraði
• aukin samhæfing

Þar að auki ýta æfingarnar undir meiri sjálfsaga og sjálfsvarnarhæfileika.
Fitness box æfingar samanstanda af styrktaræfingum, þolæfingum og brennsluæfingum (cardiovascular) sem styrkja hjartað og æðakerfið. Ómissandi þáttur æfinganna er einnig hnefaleikaæfingarnar.

Hjá Hnefaleikastöðinni eru tímar alla virka daga á kvöldin en einnig morgun og hádegistímar mán,mið og fös. Þegar keypt er áskrift að Fitnessboxi er hægt að mæta ótakmarkað í þá tíma sem eru í boði. Á laugardögum er einnig í boði sérstakur stöðvaþjálfunartími fyrir bæði Fitnessbox og Boxhópa.

FITNESSBOX ER FYRIR ALLA  HVORT SEM ÞU ERT Í LÉLEGU FORMI EÐA GÓÐU FORMI!

NIÐURSTAÐAN ER SÚ SAMA

ÞAÐ ENDA ALLIR  Í GÓÐU FORMI

 

 

Myndir

Smelltu hér til að sjá myndir

Um keppnisliðið ÆSIR

Um Hnefaleikafélagið ÆSIR