

Hjá okkur eru hnefaleikanámskeið fyrir byrjendur og áhugamenn (Byrjendabox) en einnig fyrir lengra komna og þá sem vilja keppa (Keppnishópur). Þeir sem æfa hnefaleika hjá okkur eru partur af Hnefaleikafélaginu ÆSIR. Okkar félag er eitt stærsta og virkasta hnefaleikafélag á landinu. En félagið var stofnað árið 2007
Hjá okkur eru líka unglingahópar (13-17 ára) og krakkahópar (8-12 ára) í hnefaleikum.
-Byrjenda Box
Þessi tími er hugsaður fyrir fullorðna byrjendur. Tímarnir munu samanstafa af fjölbreyttum brennslu, þol- og styrktaræfingum. Jafnframt eru undirstöðuatriði kennd s.s. fótaburður, varnar- og árasarstöður. Það er einnig mikið æft á púða, fókuspúða eða í skuggaboxi. Það þarf ekkert að keppa né æfa á móti mótherja ef maður vill það ekki. Fyrir lengra komna og þá sem vilja keppa er sérstakur keppnishópur. Þjálfari: Vilhjálmur Hernandez
-Keppnishópurinn
Keppnishópurinn er hópur fyrir þá sem eru lengra komnir og vilja fara ýtarlegra í tækni og sérhæfa sig enn frekar í hnefaleikum jafnvel keppa. Í keppnishópnum eru margir upprennandi boxarar og þónokkrir Íslandsmeistarar í sínum þyngdarflokkum. Þjálfari: Vilhjálmur Hernandez
-Boxhópur 13-17 ára
Í unglinganámskeiðunum er farið ýtarlegra í undirstöðuatriði í hnefaleikum en engu síður verður tímar brotnir upp með fjölbreytilegum og skemmtilegum æfingum. Hjá Hnefaleikafélaginu ÆSIR viljum við leggja mestu áherslu á hópefli og lífsleikni hjá unglingunum. Þó gefst sá möguleiki að byrja að keppa og æfa með mótherja í Diploma boxi. Leggjum við áherslu að viðkomandi sé vel undirbúinn áður en lagt er í keppni og það er engin skylda að keppa. Byrjendahnefaleikar eða Diploma box leggur meira upp úr tækni og eru mýkri gerð hnefaleika. Þjálfari: Vilhjálmur Hernandez. Aðstoðarþjálfari: Gunnar Kolbeinn Kristinsson
-Boxhópur 8-12 ára
Lagt er áherslu á skemmtilega hreyfingu s.s. leiki og aðrar viðeigandi æfingar fyrir þennan aldurshóp. Farið er í grunnatriði hnefaleika, tækni, stöður og þess háttar. Tímarnir eiga vera skemmtilegir fyrir börnin og jafnframt byggja upp sjálfstraust og félagshæfni. Tímarnir byggja upp metnað, sjálfsaga, einbeitingu og aðra mikilvægi kosti. Námskeiðið á að styrkja jákvæða hegðun jafnframt því að vera spennandi og skemmtilegt fyrir barnið. Þjálfari: Vilhjálmur Hernandez
Nokkur atriði um áhugamannahnefaleika ( ólympískir hnefaleikar )
• Áhugamannahnefaleikar er ein af mest útbreiddu íþróttum í heiminum með 198 aðildarþjóðir.
• Áhugamannahnefaleikar eru aðeins í 29. sæti er varðar meiðsli í íþróttum (prósentulega séð eftir fjölda iðkenda). Meiðslahætta í áhugamannahnefaleikum er mjög lág.
• Áhugamannahnefaleikar er sú íþróttagrein sem hefur umfangsmestu öryggisreglur í tengslum við keppni m.a. skal læknir vera viðstaddur allar keppnir og hefur hann heimild að grípa inn í viðureign.
• Æfingar í áhugamannahnefaleikum eru fjölbreyttar og gefa góðan líkamlegan og andlegan styrk.
• Allir sem ætla sér að keppa í áhugamannahnefaleikum þurfa að fara í gegnum ákveðna grunnþjálfum í a.m.k sex mánuði.
• Það hafa allir sem mæta á æfingu í áhugamannahnefaleikum val um að æfa eingöngu með sekk, æfa með mótherja eða bara þjálfa upp úthald og styrk. Félagskapurinn er mikilvægur í öllum íþróttum ekki síst hjá iðkendum í áhugamannahnefaleikum. Æfingar í áhugamannahnefaleikum auka sjálfsaga og iðkendur læra að hemja skap sitt.
Hanskar
Á Íslandi eiga allir keppendur að nota 10 únsu hanska: Þeir eiga að vera 284 gr. að þyngd hvor og leðrið má í hæsta lagi vera 140 gr. Allir hanskar skulu vera viðurkenndir af AIBA
Vafningar
Heimilt er að nota mjúka vafninga: Lengd þeirra má í hæsta lagi vera 2,5 og breiddin mest 5 cm. Auk þess er heimilt að nota vafninga af velpeau-gerð, en þeir mega ekki vera lengri en 2 m á hvorri hönd. enga aðra vafninga má nota. Bannað er að nota límbandsræmur, gúmmíbönd, einangrunarbönd og plástra. Nota má einfalt límband 7,5 cm á lengd og 2,5 cm á breitt um úlnliðinn til þess að festa vafninginn. Þessir vafningar eru gerðir til að vernda fingur og kjúkur gegn meiðslum.
Annar útbúnaðar
Skylt er að nota höfuðhlíf, vafninga, tannhlífar og pungbindi við iðkun hnefaleika: Konur þurfa ekki að nota pungbindi en á móti þurfa þær að nota sérstakar brjóstahlífar. Höfuðhlífin skal vera viðurkennd af AIBA og skal merki þeirra vera á henni til staðfestingar á því að hún sé viðurkennd.
Hnefaleikareglur
Til þess að mega keppa í hnefaleikum á Íslandi veður viðkomandi að hafa náð 15 ára aldri og vera í félagi sem á aðild að ÍSÍ og hafa æft í því félagi í a.m.k 6 mánuði. Framvísa þarf bréfi undirrituðu formanni viðkomandi félags eða deildar og þjálfara sem staðfesta þetta. Auk þess þarf viðkomandi að hafa þáttökubók með keppnisleyfi í gildi og hafa gengist undir læknisskoðun skv. reglum HNÍ. Keppandi sem er þrítugur verður auk þess árlega að gangast undir læknisrannsókn með heilalínuriti (EEG).
Lotur
Á HM, ÓL, álfumeistaramótum eða álfumótum skal keppt í fjórum lotum og skal hver lota vera tvær mínútur. Einnar mínútu hvíldarhlé er á milli lota. Í annarri alþjóðlegri keppni er lotufjöldinn að jafnaði eins og segir hér fyrir framan, en ef um það er sérstaklega samið fyrirfram mega loturnar vera þrjár eða fjórar og varir þá hver lota í þrjár mínútur.
Sérreglur Hnefaleikanefndar ÍSÍ
Í unglingaflokkum skulu lotur vera 3x1,5 mínútur. Ef unglingur mætir eldri keppanda skal beita unglingareglum. Keppandi sem ekki hefur náð 10 viðureignum mun keppa þrjár lotur, 1,5 mín. að lengd hver, í stað fjögurra lota í 2 mín hver.
Aldursflokkar
Í hnefaleikum er iðkendum skipt niður í þrjá aldursflokka:
15-17 ára
17-20 ára
20-34 ára




