
Davíð Smári Harðarson hefur hafið störf sem einkaþjálfari hjá Hnefaleikastöðinni. Hann útskrifaðist frá Íþróttaakademíunni vorið 2008 sem IAK Einkaþjálfari. IAK Einkaþjálfari er yfirgripsmesta nám í einkaþjálfun sem er í boði á Íslandi og býður það upp á mikla fjölbreytni í þjálfun. Námið, sem tekur 1 ár, byggist upp á, lífeðlisfræði, næringarfræði og þjálffræði, bæði verklegri og bóklegri.
Davíð hefur talsverða reynslu af þjálfun fólks í yfirvigt og fólks með ýmsa kvilla, svo sem bakveiki og fleira. Skjólstæðingar Davíðs, í mikilli yfirvigt, hafa náð frábærum árangri, enda hefur Davíð persónulega reynslu af því að létta sig umtalsvert með markvissri þjálfun og breytingu á mataræði og hefur miðlað þeirri reynslu til annarra með mjög góðum árangri. Hann veit því að með faglegum hætti, réttri leiðsögn, völdu og hollu mataræði er hægt að ná því markmiði sem hver og einn vill ná.
Einkaþjálfuninni fylgir:
- 10% af próteinhristingum
- Sérhæfð persónuleg þjálfun og ráðgjöf
- Aðgangur að aðstöðu Hnefaleikastöðvarinnar
- Fitumælingar og ummálsmælingar
- Blóðþrýstingsmælingar og vigtun
- Næringarráðgjöf
| 2svar í viku (8 skipti) |
3svar í viku (12 skipti) |
|
| 1 einstaklingur |
24.900.- |
29.900.- |
| 2 einstaklingar |
14.900.- á mann |
19.900.- á mann |
| 3 einstaklingar |
11.900.- á mann |
14.900.- á mann |
| 4 einstaklingar |
9.900.- á mann |
11.900.- á mann |
| 5 einstaklingar |
7.900.- á mann |
9.990.- á mann |




