
Fullorðinsnámskeið
Það eru tvö stig fyrir fullorðna í hnefaleikum það er byrjenda box og hópur fyrir lengra komna (Keppnishópur). Hægt er að æfa með það í huga að keppa og einnig einungis vegna heilsu, þreks og þols. Í þessum hópum er mikið aðhald. Þessir tímar hafa verið mjög vinsælir og vel sóttir. Í keppnishópnum eru margir upprennandi boxarar og nokkrir Íslandsmeistarar í sínum þyngdarflokkum. Fitness box er langvinsælasta námskeiðið okkar og í boði fyrir fullorðna og unglinga.
-Byrjenda Box
Þessi tími er hugsaður fyrir fullorðna byrjendur. Tímarnir munu samanstafa af brennslu, þol- og styrktaræfingum. Jafnframt munu undirstöðuatriði vera kennd. Þjálfari: Vilhjálmur Hernandez
-Keppnishópurinn
Keppnishópurinn er jafnframt því að vera hópur fyrir þá sem eru lengra komnir og vilja fara ýtarlegra í tækni og sérhæfa sig enn frekar í hnefaleikum. Meira um Ólympíska hnefaleika hér fyrir neðan. Þjálfari: Vilhjálmur Hernandez
-Fitness Box
í Fitness boxinu er mikil brennsla, hraði og skemmtilegir tímar fyrir þá sem vilja léttast mikið, byggja hratt upp þol og styrk. Í Fitness box tímum verður lagt áherslu á að tímarnir séu fjölbreytilegir og um er að ræða mikið púl þ.e. skemmtilegt árangursríkt púl! Taka skal fram að þetta er fyrir alla og ekki er ætlast til að fólk hafi þol fyrir. Hver og einn gerir þetta á sínum hraða en þol byggist upp hratt. Íþróttasérfræðingar um allan heim hafa verið sammála því að fitnessbox er ein besta hreyfing fyrir hjarta og æðakerfið. Einnig erum við með 90 mínútna tíma sem við kölluð Fitnessbox Extreme. Sjá meira hér fyrir neðan. Þjálfari: Vilhjálmur Hernandez. Aðstoðarþjálfarar: Davíð Smári Harðarson, Þorgeir Pálsson og Davíð Rúnar Bjarnason

Unglinganámskeið ( 13-17 ára )
-Boxhópur 13-17 ára
Í unglinganámskeiðunum er farið er ýtarlegra í undirstöðuatriði í hnefaleikum en engu síður verður tímar brotnir upp með fjölbreytilegum og skemmtilegum æfingum. Í unglingahópnum gefst sá möguleiki að byrja að keppa og æfa með mótherja. Leggjum við þó áherslu að viðkomandi sé vel undirbúinn áður en lagt er í keppni. Byrjendahnefaleikar leggja meira upp úr tækni og eru mýkri gerð áhugamannahnefaleika. Hjá Hnefaleikafélaginu ÆSIR viljum við leggja mestu áherslu á hópefli og lífsleikni hjá unglingunum. Þjálfari: Vilhjálmur Hernandez. Aðstoðarþjálfari: Gunnar Kolbeinn Kristinsson

Barnanámskeið ( 8-12 ára )
-Boxhópur 8-12 ára
Lagt er áherslu á skemmtilega hreyfingu s.s. leiki og aðrar viðeigandi æfingar fyrir þennan aldurshóp. Farið er í grunnatriði hnefaleika, tækni, stöður og þess háttar. Tímarnir eiga vera skemmtilegir fyrir börnin og jafnframt byggja upp sjálfstraust og félagshæfni. Til þess að byggja upp metnað, sjálfsaga, einbeitingu, skipulagsfærni og aðra mikilvægi kosti höfum við hvatningarkerfi fyrir börnin eða sérstakt verðlaunakerfi sem við köllum KiNitro. Þetta á að styrkja jákvæða hegðun jafnframt því að vera spennandi og skemmtilegt fyrir barnið. Meira um KiNitro hvatningarkerfið á linknum hér fyrir neðan. Þjálfari: Vilhjálmur Hernandez



